Höfuðstöðvar
Smáratorg 2, 201 Kópavogur
Framkvæmdastjóri
Haukur Hannesson
Sími
+354 512 1000
Netfang
Vefsíða
AGR Dynamics
Er hugbúnaðarhús á sviði vörustjórnunarlausna og Microsoft NAV. Hugbúnaðarlausnir AGR aðstoða heild- og smásala við að lágmarka kostnað við rekstur aðfangakeðjunnar með að gera nákvæmar söluspár og reikna út hagkvæmasta innkaupamagn fyrir vöruhús og verslanir.
Innkaupa- og söluspákerfi AGR hafa verið innleidd hjá rúmlega 100 fyrirtækjum í 22 löndum en það starfa 45 manns á skrifstofum félagsins á Íslandi, Bretlandi og Danmörku.
Fjárfest árið
2009
Hafið samband
Við hjá Frumtak Ventures hvetjum frumkvöðla til að koma í „spjall“ til okkar því það geta verið fleiri verðmæti í samtalinu heldur en fjármunir til fjárfestinga. Þar sem Frumtak er vaxtarsjóður, þarf að vera komin vara, velta og viðskiptavinur. Þetta er oft ekki til staðar, en engu að síður mikilvægt að aðilar nái að kynnast því það styttir yfirleitt tímann sem þarf til kynninga seinna þegar þessi skilyrði eru uppfyllt. Spjallið verður þannig grunnur til að koma á gagnkvæmum skilningi á milli aðila og ekki síst til þess að byggja upp traust sem er forsenda þess að aðilar treysti sér til þess að vinna saman í framtíðinni
Best er að hafa samband við okkur með því að senda tölvupóst og óska eftir fundi. Vinsamlegast athugið að við fjárfestum eingöngu á Íslandi
+ 354 510 1850