Frumtak Ventures hefur ásamt bandaríska áhættufjárfestingasjóðinum Capital A Partners og fyrri fjárfestum fjárfest í tæknifyrirtækinu Kaptio ehf., og nemur fjárfestingin alls 325 milljónir króna. Þessi fjármögnun er liður í því að gera Kaptio kleift að styrkja vöruþróun og sölu á Kaptio Travel lausninni á Bretlandsmarkaði og undirbúa frekari vöxt fyrirtækisins alþjóðlegum markaði. Kaptio Travel, sem er aðalvara Kaptio, hjálpar ferðaskrifstofum og ferðaskipuleggjendum að halda utan um tilboðsferli og bókanir viðskiptavina sinna á skilvirkari hátt en áður og auðveldar jafnframt samskipti við endursöluaðila og birgja. Hugbúnaðarlausnin er hönnuð sem viðbót við Salesforce.com viðskiptatengslakerfið (CRM) en Salesforce er eitt þekktasta fyrirtæki á sínu sviði í heiminum. Kaptio er með söluskrifstofu í London, en fyrirtækið rekur einnig þróunarskrifstofur í Þýskalandi og Hvíta-Rússlandi.
Frekari upplýsingar er að finna á http://kaptio.com/
Recent Comments